29 Ágúst 2016 20:00

Brot 11 ökumanna voru mynduð í Gvendargeisla í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Gvendargeisla í vesturátt, á móts við Gvendargeisla 80, skammt frá Sæmundarskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 44 ökutæki þessa akstursleið og því ók fjórðungur ökumanna, eða 25%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51.

Vöktun lögreglunnar í Gvendargeisla er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.