4 September 2020 10:11

Brot 13 ökumanna voru mynduð í Gvendargeisla í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Gvendargeisla í vesturátt, á móts við Gvendargeisla 82, skammt frá Sæmundarskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 61 ökutæki þessa akstursleið og því ók um fimmtungur ökumanna, eða 21%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 49.

Vöktun lögreglunnar í Gvendargeisla er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að hálfskýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.