26 Mars 2013 12:00

Brot 11 ökumanna voru mynduð í Gvendargeisla í Reykjavík á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Gvendargeisla í vesturátt. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 47 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega fjórðungur ökumanna, eða 23%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 48.

Vöktun lögreglunnar í Gvendargeisla er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.