11 Mars 2008 12:00

Tuttugu og níu ökumenn voru staðnir að hraðakstri á Suðurbraut í Hafnarfirði í dag en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar í dag eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu en unnið er eftir ábendingum frá starfsmönnum svæðisstöðva lögreglunnar.

Brot 22 ökumanna voru mynduð á Suðurbraut, nærri Lindarhvammi, fyrir hádegi. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið í norðurátt en þarna er 50 km hámarkshraði. Á einni klukkustund fóru 169 ökutæki þessa akstursleið og því óku 13% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var tæplega 64 km/klst. Þrír óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 72. 

Brot 7 ökumanna voru mynduð á Suðurbraut, nærri Hvaleyrarskóla, eftir hádegi. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið í suðurátt en þarna er 50 km hámarkshraði. Á einni klukkustund fóru 42 ökutæki þessa akstursleið og því óku 17% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var tæplega 61 km/klst. Sá sem hraðast ók mældist á 64.