25 Mars 2010 12:00

Brot 5 ökumanna voru mynduð í Háholti í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Háholt í austurátt, við Brattholt. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 14 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega þriðjungur ökumanna, eða 36%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 49.

Mælingarnar í gær eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu. Í Háholti var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað í Háholti en þá óku hlutfallslega ámóta margir, eða 35%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Árið áður (2008) var niðurstaðan hinsvegar 25%.