22 September 2010 12:00

Brot 4 ökumanna voru mynduð í Háholti í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Háholt í vesturátt, að Álfholti. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 48 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáir ökumenn, eða 8%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 41 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. 

Vöktun lögreglunnar í Háholti, en í nágrenninu er Hvaleyrarskóli, er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.