28 Apríl 2011 12:00

Brot 7 ökumanna voru mynduð í Háholti í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Háholt í austurátt, við Brattholt. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 17 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í helmingur ökumanna, eða 41%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 57. 

Þess má geta að lögreglan hefur verið við hraðamælingar á þessum stað nokkrum sinnum áður og þá hefur brotahlutfallið jafnan verið lægra, eða 25-36% en meðalhraði hinna brotlegu hefur verið um 44 km/klst.