30 Mars 2012 12:00

Brot 3 ökumanna voru mynduð í Háholti í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Háholt í austurátt, við Brattholt. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 11 ökutæki þessa akstursleið og því ók um fjórðungur ökumanna, eða 27%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Hinir brotlegu mældust allir á 39 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. 

Vöktun lögreglunnar í Háholti er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.