28 Mars 2014 12:00

Brot 7 ökumanna voru mynduð í Háholti í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Háholt í austurátt, við Brattholt. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 23 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í þriðjungur ökumanna, eða 30%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. 

Vöktun lögreglunnar í Háholti er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.