27 Mars 2015 17:25

Brot 3 ökumanna voru mynduð í Háholti í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Háholt í suðurátt, við Brattholt. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 20 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáir ökumenn, eða 15%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Einna hinna brotlegu mældist á 39 og tveir á 40 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. 

Vöktun lögreglunnar í Háholti, en á meðan henni stóð gekk á með éljum og snjóþekja var á akbrautinni, er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.