2 Apríl 2008 12:00

Brot 6 ökumanna voru mynduð í Háholti í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Háholt í austurátt, nærri leikskólanum Álfasteini. Á einni klukkustund, fyrir hádegi,  fóru 24 ökutæki þessa akstursleið og því ók fjórðungur ökumanna, eða 25%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var rúmlega 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.  Sá sem hraðast ók mældist á 52. 

Eftirlit lögreglunnar í Háholti er hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu en unnið er eftir ábendingum frá starfsmönnum svæðisstöðva lögreglunnar. Í Háholti var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.