20 Maí 2022 11:26

Brot 48 ökumanna voru mynduð í Hamrabergi í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hamraberg í suðurátt, að Hnotubergi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 245 ökutæki þessa akstursleið og því ók fimmtungur ökumanna, eða 20%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 54.

Vöktun lögreglunnar í Hamrabergi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.