12 September 2008 12:00

Brot 32 ökumanna voru mynduð í Hamrabergi í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hamraberg í vesturátt, að Lyngbergi. Á einni klukkustund, eftir hádegi,  fóru 55 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 58%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var tæplega 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sex óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 59. Á þessum stað í Hamrabergi eru bæði merktar gangbrautir og hraðahindranir.

Eftirlit lögreglunnar í Hamrabergi kom í kjölfar ábendinga frá íbúum í hverfinu sem kvörtuðu undan hraðakstri á þessum stað.