11 Febrúar 2014 12:00

Brot 52 ökumanna voru mynduð í Hamrahlíð í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hamrahlíð í vesturátt, að Bogahlíð. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 168 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega þriðjungur ökumanna, eða 31%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Fimm óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 56.

Vöktun lögreglunnar í Hamrahlíð er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.