12 Júní 2014 12:00

Brot 28 ökumanna voru mynduð í Hamrahlíð í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hamrahlíð í austurátt, við MH. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 77 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 36%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 59. 

Vöktun lögreglunnar í Hamrahlíð er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.