29 Ágúst 2014 12:00

Brot 25 ökumanna voru mynduð í Hamrahlíð í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hamrahlíð í vesturátt, á móts við Hlíðaskóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 150 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 17%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51.

Vöktun lögreglunnar í Hamrahlíð er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.