12 Júní 2015 16:56

Brot 22 ökumanna voru mynduð í Hamrahlíð í Reykjavík á miðvikudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hamrahlíð í austurátt, á móts við MH. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 65 ökutæki þessa akstursleið og því ók um þriðjungur ökumanna, eða 34%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 50.

Vöktun lögreglunnar í Hamrahlíð er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.