16 September 2015 16:56

Brot 11 ökumanna voru mynduð í Hamrahlíð í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hamrahlíð í vesturátt, á móts við Hlíðarskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 150 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 7%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 40 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar í Hamrahlíð er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.