1 Júní 2016 20:01

Brot 18 ökumanna voru mynduð í Hamrahlíð í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hamrahlíð í austurátt, á móts við Hamrahlíð 35. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 61 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 30%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar í Hamrahlíð er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.