7 September 2016 11:17

Brot 29 ökumanna voru mynduð í Hamrahlíð í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hamrahlíð í vesturátt, á móts við Hlíðaskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 155 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega fimmtungur ökumanna, eða 19%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 48.

Vöktun lögreglunnar í Hamrahlíð er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.