15 Júní 2017 12:26

Brot 29 ökumanna voru mynduð í Hamrahlíð í Reykjavík á þriðjudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hamrahlíð í austurátt, á móts við MH. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 65 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í helmingur ökumanna, eða 45%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51.

Vöktun lögreglunnar í Hamrahlíð er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.