4 Desember 2009 12:00

Brot 49 ökumanna voru mynduð í Hamrahlíð í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hamrahlíð í vesturátt, nærri Stigahlíð. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 209 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega fjórðungur ökumanna, eða 23%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51.

Eftirlit lögreglunnar í Hamrahlíð var tilkomið vegna ábendinga frá íbúum í hverfinu en þeir hafa kvartað undan hraðakstri. Ábendingum þess efnis var einnig komið á framfæri á fundi sem lögreglan átti með lykilfólki í hverfinu og haldinn var nýverið.