20 September 2018 17:00

Brot 21 ökumanns var myndað í Hamrahlíð í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hamrahlíð í vesturátt, á móts við Hlíðaskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 155 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 14%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar í Hamrahlíð er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.