16 September 2019 15:13

Brot 7 ökumanna voru mynduð í Hamrahlíð í Reykjavík á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hamrahlíð í vesturátt, á móts við Hlíðaskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 206 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn,  eða 3%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 41 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar í Hamrahlíð er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.