26 Ágúst 2010 12:00

Brot 41 ökumanns var myndað í Hamrahlíð í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hamrahlíð í vesturátt, við Hlíðaskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 209 ökutæki þessa akstursleið og því ók fimmtungur ökumanna, eða 20%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 53.

Vöktun lögreglunnar í Hamrahlíð er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.