15 Júní 2009 12:00

Þrjátíu og einn var staðinn að hraðakstri í Hamrahlíð í Reykjavík föstudaginn 5. júní sl. en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar 5. júní eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í umdæminu.

Eins og fyrr sagði var brot 31 ökumanns myndað í Hamrahlíð en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í austurátt, gegnt MH. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 70 ökutæki þessa akstursleið og því óku 44% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Fimm óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 54.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað í Hamrahlíð og þá óku 38% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða en þá var meiri umferð um götuna (85 ökutæki). Meðalhraði hinna brotlegu í fyrra var 44 km/klst.