29 Febrúar 2008 12:00

Brot fjörutíu og þriggja ökumanna voru mynduð í Hamrahlíð sl. miðvikudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hamrahlíð í vesturátt, gegnt Hlíðaskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi,  fóru 176 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega fjórðungur ökumanna, eða 24%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var liðlega 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.  Sá sem hraðast ók mældist á 51.

Eftirlit lögreglunnar í Hamrahlíð kom í kjölfar erindis sem henni barst frá foreldrafélagi Hlíðaskóla. Í því var lýst yfir áhyggjum vegna stöðu umferðarmála við skólann. Tími vöktunarinnar tók mið af heimferð barna frá skólanum.