28 Maí 2020 16:11

Brot 13 ökumanna voru mynduð í Hamravík í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hamravík í suðurátt, við Breiðuvík. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 60 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega fimmtungur ökumanna, eða 22%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 47.

Vöktun lögreglunnar í Hamravík er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.