8 September 2020 15:55

Brot 16 ökumanna voru mynduð í Hamravík í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hamravík í vesturátt, við Breiðuvík. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 58 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 28%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 41 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 50.

Vöktun lögreglunnar í Hamravík er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigningaskúrir voru á meðan hraðamælingunni stóð.