15 September 2010 12:00

Brot 20 ökumanna voru mynduð í Hamravík í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hamravík í vesturátt, að Víkurskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 40 ökutæki þessa akstursleið og því ók helmingur ökumanna, eða 50%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var rúmlega 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 53.

Vöktun lögreglunnar í Hamravík er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.