7 Mars 2011 12:00

Brot 20 ökumanna voru mynduð í Hátúni í Reykjavík á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hátún í vesturátt, austan Nóatúns. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 50 ökutæki þessa akstursleið og því óku margir ökumenn, eða 40%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Þrír óku á 50 km hraða eða meira.

Eftirlit lögreglunnar var tilkomið vegna ábendinga um hraðakstur á þessum stað.