26 Október 2010 12:00

Brot 26 ökumanna voru mynduð í Hátúni í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hátún í austurátt, austan Nóatúns. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 57 ökutæki þessa akstursleið og því ók næstum helmingur ökumanna, eða 46%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Fimm óku á 50 km hraða eða meira, þar af einn á 78 sem verður að teljast ofsahraði á stað sem þessum.

Vöktun lögreglunnar í Hátúni var tilkomin vegna ábendinga um hraðakstur.