21 Júní 2012 12:00

Brot 19 ökumanna voru mynduð í Heiðargerði í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Heiðargerði í vesturátt. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 34 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 56%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 52.

Vöktun lögreglunnar í Heiðargerði er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu. Við fyrri hraðamælingar lögreglunnar á þessum stað hefur brotahlutfallið verið 23-50%.