7 Apríl 2014 12:00

Brot 10 ökumanna voru mynduð í Heiðargerði í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Heiðargerði í vesturátt. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 24 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega margir ökumenn, eða 42%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 54.

Vöktun lögreglunnar í Heiðargerði er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.