24 Júní 2014 12:00

Brot 14 ökumanna voru mynduð í Heiðargerði í Reykjavík á fimmtudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Heiðargerði í vesturátt, við innkeyrslu að húsum nr. 27-33. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 37 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur  ökumanna, eða 38%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar í Heiðargerði er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.