12 Júní 2015 16:57

Brot 12 ökumanna voru mynduð í Heiðargerði í Reykjavík á miðvikudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Heiðargerði í vesturátt, á móts við Heiðargerði 27. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 32 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 38%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51.

Vöktun lögreglunnar í Heiðargerði er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.