22 Júní 2016 09:35

Brot 6 ökumanna voru mynduð í Heiðargerði í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Heiðargerði í vesturátt, á móts við Heiðargerði 48. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 28 ökutæki þessa akstursleið og því ók um fimmtungur ökumanna, eða 21%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51.

Vöktun lögreglunnar í Heiðargerði er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.