15 Júní 2009 12:00

Átta voru staðnir að hraðakstri í Heiðargerði í Reykjavík föstudaginn 5. júní sl. en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar 5. júní eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í umdæminu.

Eins og fyrr sagði voru brot 8 ökumanna mynduð í Heiðargerði en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í vesturátt. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 35 ökutæki þessa akstursleið og því óku 23% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 48.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað í Heiðargerði en þá óku 50% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða en þá var meiri umferð um götuna (42 ökutæki). Meðalhraði hinna brotlegu í fyrra var 46 km/klst.