13 Nóvember 2009 12:00

Brot 5 ökumanna voru mynduð í Heiðarhjalla í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Heiðarhjalla í vesturátt, að Digranesvegi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 14 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega þriðjungur ökumanna, eða 36%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 50.

Eftirlit lögreglunnar í Heiðarhjalla var tilkomið vegna ábendinga frá íbúum við götuna en þeir hafa kvartað undan hraðakstri.