10 Júní 2020 16:45

Brot 22 ökumanna voru mynduð í Hlíðarbergi í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hlíðarberg í vesturátt, við Setbergsskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 80 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 28%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 54.

Vöktun lögreglunnar í Hlíðarbergi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.