8 September 2009 12:00

Tuttugu og átta voru staðnir að hraðakstri í Hlíðarbergi í Hafnarfirði í gær en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.

Eins og fyrr sagði voru brot 28 ökumanna mynduð í Hlíðarbergi en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í vesturátt, við Setbergsskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 92 ökutæki þessa akstursleið og því óku 30% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var rúmlega 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 47.

Vöktun lögreglunnar í Hlíðarbergi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu en við götuna er fyrrnefndur Setbergsskóli.