12 Mars 2010 12:00

Brot 22 ökumanna voru mynduð í Hlíðarbergi í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hlíðarberg í vesturátt, gegnt Setbergsskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 86 ökutæki þessa akstursleið og því ók um fjórðungur ökumanna, eða 26%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51.

Mælingarnar í gær eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu. Í Hlíðarbergi var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað í Hlíðarbergi en þá óku hlutfallslega fleiri, eða 45%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Árið áður (2008) var niðurstaðan 30%.