12 Október 2012 12:00

Brot 22 ökumanna voru mynduð í Hlíðarbergi í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hlíðarberg í vesturátt, við Setbergsskóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 68 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega þriðjungur ökumanna, eða 32%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 54.

Vöktun lögreglunnar í Hlíðarbergi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.