11 September 2013 12:00

Brot 21 ökumanns var myndað í Hlíðarbergi í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hlíðarberg í vesturátt, við Setbergsskóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 83 ökutæki þessa akstursleið og því ók fjórðungur ökumanna, eða 25%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar í Hlíðarbergi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.