4 September 2014 12:00

Brot 19 ökumanna voru mynduð í Hlíðarbergi í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hlíðarberg í norðurátt, á móts við Setbergsskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 97 ökutæki þessa akstursleið og því ók fimmtungur ökumanna, eða 20%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 50.

Vöktun lögreglunnar í Hlíðarbergi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.