7 September 2015 16:31

Brot 14 ökumanna voru mynduð í Hlíðarbergi í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hlíðarberg í vesturátt, við Setbergsskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 81 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 17%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 41 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar í Hlíðarbergi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.