14 September 2016 10:04

Brot 27 ökumanna voru mynduð í Hlíðarbergi í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hlíðarberg í vesturátt, við Setbergsskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 75 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 36%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 50.

Vöktun lögreglunnar í Hlíðarbergi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.