12 Apríl 2013 12:00

Brot 3 ökumanna voru mynduð í Hlíðarhjalla í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hlíðarhjalla í vesturátt, við innkeyrslu að húsum nr. 63-73. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 45 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáir ökumenn, eða 7%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Hinir brotlegu mældust á 61, 62 og 65 km hraða en þarna er 50 km hámarkshraði. 

Vöktun lögreglunnar í Hlíðarhjalla er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.