21 Apríl 2008 12:00

Brot þriggja ökumanna voru mynduð í Hlíðarhjalla í Kópavogi á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hlíðarhjalla í vesturátt, að Skálaheiði. Á einni klukkustund, fyrir hádegi,  fóru 38 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáeinir ökumenn, eða 8%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var liðlega 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. 

Eftirlit lögreglunnar í Hlíðarhjalla er hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu en unnið er eftir ábendingum frá starfsmönnum svæðisstöðva lögreglunnar. Í Hlíðarhjalla var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.