9 Nóvember 2010 12:00

Brot 7 ökumanna voru mynduð í Hólabergi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hólaberg í suðurátt, sunnan Klapparbergs. Á einni klukkustund, síðdegis, fóru 25 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 28%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 46.

Vöktun lögreglunnar í Hólabergi var tilkomin vegna ábendinga um hraðakstur.